Search
Close this search box.

New York Times velur EliteBook sem vinnutölvu ársins

New York Times tók fyrir bestu vinnufartölvurnar árið 2024 á dögunum. Sá búnaður sem skaraði fram úr var HP EliteBook 840 G11, að mati miðilsins. Meðal þess sem New York Times skoðaði voru fjöldi tengiraufa, gæði lyklaborðsins, frammistaða örgjörva, gæði rafhlöðuendingar, þyngd búnaðar og fingrafaraskanna. Sagt var að vélin henti fyrir flesta skrifstofuvinnu, skjárinn sé náttúrulegri en hjá samkeppnisaðilum, rafhlaðan endist heilan vinnudag og þá sé hún með öfluga 5 megapixla vefmyndavél. Einnig var tekið fram að auðvelt væri að taka tölvuna hana í sundur þegar kemur að viðgerðum og að skipta út íhlutum.

Það sem sker EliteBook frá öðrum framleiðendum er að tölvan er að mestu leyti framleidd úr endurunnu eða endurvinnanlegu áli. Þá eru umbúðir HP véla 100% úr endurvinnanlegum pakkningum. Til þess að ná sjálfbærnimarkmiðum sínum leggur HP áherslu á að endurnýta plast, fiskinet og pólýstýren-froðu (EPS) úr sjó við framleiðslu sína. Þess má geta að HP skoraði hæst fyrirtækja í flokknum Electronics, Hardware and Equipment á sjálfbærnilista tímaritsins TIME 2024.

HP fartölvur fást í vefverslun OK.

deildu fréttinni