Sala á gagnvirkum snertiskjám til kennslu mun vaxa um 7,2% árlega fram til ársins 2030. Slíkur vöxtur er knúinn áfram að samþættingu stafrænna lausna í kennslustofum, að því er fram kom á viðburði OK um gagnvirkar kennslulausnir frá Optoma.
„Optoma Education hefur um árabil unnið náið með kennurum í þróun á notendavænum lausnum til þessi að umbreyta kennslustarfi í takt við nýja tíma og -þarfir nemenda. Markmið Optoma er að veita kennurum þau verkfæri sem þeir þurfa til að hvetja, virkja og aðlaga nám að nemendum og gera hverja kennslustund áhrifaríka og meira spennandi,“ segir Gísli Þorsteinsson forstöðumaður notendalausna hjá OK.Að lokinni kynningu gátu fundargestir prófað og kynnt sér betur lausnir frá Optoma Education.



