Metfjöldi fyrirtækja varð fyrir gagnagíslatöku á heimsvísu í upphafi árs miðað við árin á undan, að sögn sérfræðings hjá OK.
Fyrirtækið hélt fjölmennan veffund þar sem fjallað var um öryggislausnir sem almennum tölvunotendum stendur til boða yfir í stærri öryggislausnir sem hægt er að nýta fyrir stofnanir og fyrirtæki.
„Gagnagíslataka jókst um 21% í janúar á þessu ári miðað við árið á undan. Aldrei fleiri hafa jafn mörg tilvik verið skráð frá 2020,“ segir Trausti Eiríksson sölustjóri HP hjá OK. Hann segir að á fjórða tug hópa standi á bakvið þessar árásir samkvæmt heimildum rannsakanda.
„Meðal stærstu atvika má nefna árás á AWS og á MetLife,“ segir Trausti. Hann segir að gagnagíslataka sé tölvuárás, þar sem forrit, sem dulkóðar gögn, er komið fyrir á tölvu án vitneskju notanda og hann krafinn um fjármuni til að fá aðgang að gögnum sínum aftur. Ef ekki sé greitt fyrir gögnin eru dæmi um að þau verið til sölu á huldunetinu (Dark web). Til eru slík dæmi hjá íslenskum fyrirtækjum.
„Það sem er lykilatriði er að almennir notendur og fyrirtæki séu á varðbergi þegar kemur að því hverju sé treystandi og hvaðan hlekkir og upplýsingar koma á netinu. Við vinnum náið með tæknirisanum HP þegar kemur að öryggislausnum, meðal annars sem snýr að öryggi í tölvubúnaði notenda. Í tölvum er hægt að vernda BIOS (grunnstýrikerfi) tölvunnar gegn árásum. Það er gert með sérstökum búnaði þar sem hægt er að láta notanda vita áður en vélin kveikir á sér og ógnin kemst inn á vélbúnaðinn og stýrikerfið. Þá er möguleiki á að einangra spilliforrit og koma í veg fyrir að þau komst í gögn eða stýrikerfi hjá notanda. Það er hægt að nota þá lausn óháð því hvaða tölvuframleiðanda fyrirtækið er að nota,“ segir Trausti.
„Við fundum það á vefviðburðinum að öryggismál á tölvuinnviðum eru notendum og fyrirtækjum ofarlega í huga, hvort sem þau tengjast útstöðum eða stærri lausnum sem ná heilt yfir vélbúnað og netkerfi fyrirtækisins. Þessi mál þurfa að vera í sífelldri endurskoðun svo mögulegt sé að bregðast við þeim ógnum sem eru til staðar hverju sinni.“