Sænska tæknifyrirtækið Humly hefur valið OK sem samstarfsaðila á Íslandi fyrir Humly bókunarlausnir. Humly er alþjóðlegt fyrirtæki sem veitir lausnir og þjónustu um allan heim í gegnum staðbundna samstarfsaðila. Fyrirtækið er með starfsstöðvar á nokkrum stöðum víðs vegar um Evrópu, Asíu og Norður-Ameríku.
Humly hefur þróað bókunar- og móttökulausnir fyrir vinnustaði í rúman einn og hálfan áratug. Safnið þeirra samanstendur af lausnum til að bóka fundarherbergi, borð á vinnustöðum, næðisrými, gólfplön, bókun á bifreiðum og bílastæðum á vinnustað. Í raun er hægt að nýta Humly lausnina fyrir langflesta bókunarmöguleika.
„Starfsfólk hefur í dag ýmsar leiðir til þess að sinna daglegum verkefnum. Sumir vinna heima, aðrir eru í blandaðri vinnu og enn aðrir eru á skrifstofunni. Þessi blandaða vinna hefur skapað forsendur fyrir opið sætaskipulag eða verkefnamiðaða vinnuaðstöðu (e. Free seating) í fyrirtækjum. Í slíku skipulagi skiptir máli að geta bókað borð, næðisrými eða fundarherbergi með einföldum hætti, með lausn sem er samþættanleg þeim sem fyrir eru á vinnustaðnum. Humly er einstaklega einföld og skalanleg lausn enda hefur hún náð miklum vinsældum hjá fyrirtækjum í Skandinavíu og víðar, þar sem blönduð vinna (e. Hybrid working) er í miklum vexti,“ segir Kristinn Helgason, sölustjóri hjá OK.
Humly lausnir eru nú að finna í rúmlega 100 þúsund fundarherbergjum fyrirtækja víðs vegar um heim, þar á meðal í fjölmörgum Fortune 500 fyrirtækjum. Humly lausnir eru annálaðar fyrir glæsileika og eru margverðlaunaðar. Fyrirtækið hlaut meðal annars á dögunum Red Dot verðlaun fyrir hönnun sína.