Ofurtölvan El Capitan frá Hewlett Packard Enterprise (HPE) er öflugasta ofurtölva í heiminum. Reiknigeta tölvunnar á einni sekúndu er ígildi þess ef allt mannkynið framkvæmdi samlagningu eða frádrátt á hverri sekúndu í átta ár. Ofurtölvan er notuð í vísindarannsóknir, þar á meðal loftslagsrannsóknir, lyfjaþróun og kjarnorkuöryggi.
El Capitan er byggð á AMD EPYC 4-kynslóðar örgjörvum og AMD MI300A hröðlum ( AMD Instinct MI300 APU). Yfir 11 milljón miðvinnslueiningar (CPU og GPU) eru í ofurtölvunni, sem gefur rúm 1.742 ExaFlops (milljarður milljarða) í afkastagetu, en fræðilega séð getur hún náð 2.746 ExaFlops
El Capitan ofurtölvan er nefnd eftir samnefndu fjalli í Yosemite þjóðgarðinum. Hún er staðsett í Lawrence Livermore National Laboratory í Kalifornínu í Bandaríkjunum.
7 af 10 stærstu ofurtölvum eru byggðar á HPE/Cray vélbúnaði og um það bil helmingur af tölvuafli/reiknigetu 500 stærstu ofurtölva heims kemur frá HPE vélbúnaði, að því er fram kemur á Top 500.