Sérfræðingar OK í hljóð- og myndlausnum hafa hlotið vottanir fyrir nýja Pro-Audio hljóðlausn frá Yealink.
Þessi vörulína hefur yfir að ráða nýrri tegund af hljóðnemum, hátalara og hljóðstýringu.
Hljóðstýringin er með öfluga gervigreind sem að greinir hljóðvist í rýminu og stillir búnaðinn svo að hann hljómi sem best.
Búnaður frá Yealink er einstaklega sveigjanlegur. Þar af leiðandi er einfalt að tengja nýju hljóðstýringuna við búnað frá öðrum framleiðendum.