FYRIR
Kraftur
VEFUR
þjónusta
Vefsíða
okkar hlutverk
Hönnun, forritunarvinna, notenda upplifun
Árleg vitundarvakning & söfnunarátak
Á hverju ári stendur Kraftur fyrir vitundarvakningu og söfnunarátaki. Um 70 ungir einstaklingar greinast á ári hverju með krabbamein. Kraftur er stuðningsfélag fyrir ungt fólk 18-40 ára sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra.
Stuðningur í verki
OK vildi sýna stuðning í verki í þessu mikilvæga átaki sem Kraftur stendur fyrir. Við gerðum það með því að gefa vinnuna við uppsetningu á vefnum þeirra.
Frábært samstarf
Við uppsetningu á vefnum áttum við frábært samstarf með Hvíta húsinu og Krafti. Allt myndefni og markaðsefni fyrir vefinn kom frá Hvíta húsinu. Útlit vefsins var gert í samráði við Hvíta húsið og Kraft.
Réttu tólin
Til tryggja hraða og skilvirka uppsetningu á vefnum var notast við Asana og Microsoft Teams. Með þessu var hægt að úthluta verkefnum og eiga hröð og góð samskipti.
Leave a comment