HP EliteBook X 14 (G1a) er öflugasta gervigreindar fartölva á fyrirtækjamarkaði til þessa að sögn xda-developers.com. Vélin er búin örgjörva sem vinnur á 55 TOPS (NPU), sem segir til um hversu hratt hún getur unnið úr gervigreindarverkefnum. Ástæðan fyrir því er að tölvan er útbúinn AMD Ryzen AI 9 HX PRO 375 örgjörvanum sem HP hefur einkarétt á, en aðrir framleiðendur ná mest 50 TOPS, að sögn xda-developers.
Sérstakur AI aðstoðarmaður
HP EliteBook X G1a býr yfir AI Companion sem er þinn persónulegi aðstoðarmaður á tölvunni. HP AI Companion inniheldur safn af gervigreindartólum og eiginleikum sem auka skilvirkni og framleiðni. Appið gerir þér kleift að nýta gervigreind til að einfalda og bæta dagleg verkefni.
Þá er vélin með Poly Camera Pro sem stillir sjálfvirkt myndavél með eiginleikum eins og Auto Frame og bakgrunni. Þessar stillingar virka með öllum myndavélum sem eru tengdar tölvunni. Smart Sense fínstillir afköst í rauntíma með því að fylgjast með hitastigi, staðsetningu tölvunnar og hreyfingu hennar.
Framúrskarandi hönnun
Vélin er með tveimur Thunderbolt 4 tengjum, uppfærðu kælikerfi og áli í grindinni. „Þessi fartölva sameinar öflug afköst og framúrskarandi hönnun,“ segir windowscentral.com.
HP EliteBook X byggir á grunni OmniBook Ultra 14, en með betrumbættum eiginleikum. Hún er með 2.8K OLED skjá, 120Hz endurnýjunartíðni og tveggja tóna lyklaborði. Skjárinn skilar ríkum litum og háum skerpu, sem er stórt stökk frá hefðbundnum IPS skjám.
Fyrsta eintakið er komið til OK en viðskiptavinir geta forpantað vélina, bæði með AMD eða Intel örgjörva.
HP EliteBook X 14 fartölvan verður á OK básnum á UTmessunni í Hörpu dagana 7. og 8. febrúar.