Jabra Evolve2 85 er langmest selda heyrnartólið fyrir skrifstofufólk á árinu 2024, hjá OK. „Helsta skýringin á vinsældum Jabra Evolve2 85 er að þau búa yfir öflugri hljóðeinangrun og skila skýru hljóði fyrir starfsfólk sem sinnir símtölum og fjarfundum í opnu vinnurými. Tækið hefur 10 hljóðnema, sem tryggja að samtal notanda berist aðeins yfir til viðmælenda en annar umhverfishávaði er síaður út,“ segir Þórunn Þorbjörnsdóttir, verslunarstjóri ok.is.
„Heyrnartólin hafa einnig skorað hátt hjá þeim sem þurfa þau fyrir hljóðeinangrun og tónlistarflutning á skrifstofu. Þá búa þau yfir öflugri rafhlöðuendingu, eða allt 30 klst í tali og 37 klst fyrir tónlist,“ segir Þórunn.
Hún bætir við að Jabra séu framúrskarandi hvað hönnun varðar. „Jabra er danskur framleiðandi og Danir eru þekktir fyrir glæsilega hönnun. Jabra er þar engin undanteking. Við finnum að margir horfa í slíkt þegar þeir velja sér heyrnartól og þeim finnst gott að vita að Jabra gefur engan afslátt á hönnun heyrnartóla.“
Þórunn segir að það sem komi til með að verða áberandi í framtíðinni hvað heyrnartól varðar sé aukin áhersla á gervigreind í takt við annan tölvubúnað, enn öflugari hljóðeinangrun og áhersla á sjálfbærni. „Við munum sjá þessa þrjá þætti vaxa á næsta ári, ekki síst eftirspurn eftir framleiðendum sem leggja mikla áherslu á sjálfbærni í sinni framleiðslu. Þar má nefna umbúðir sem hægt er að endurnýta og endurnnið plast sem dæmi.“